Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Vel gengur við veglagningu á þriðja áfanga Arnarnesvegar

Vel gengur við veglagningu á þriðja áfanga Arnarnesvegar

126
0
Mynd: Vilhelm Gunnarsson/Vegagerðin
Vel gengur við veglagningu á þriðja áfanga Arnarnesvegar en fyrsta skóflustunga var tekin í ágúst 2023.
Þessi þriðji áfangi er á milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
Með framkvæmdinni mun umferðaöryggi aukast, ferðatími styttast og draga úr umferð við Vatnsendaveg.
Frá því að verkið hófst hefur verið unnið við breikkun Breiðholtsbrautar sunnan núverandi vegar, milli Vatnsendahvarfs og Jaðarsels.
Mynd: Vilhelm Gunnarsson/Vegagerðin
Í Elliðaárdal er búið er að malbika hjáleið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem eiga leið um svæðið og einnig er búið að setja upp lýsingu við stíginn.
Myndirnar eru teknar í desember af Vilhelm Gunnarssyni fyrir Vegagerðina.
Áætluð verklok eru haustið 2026.