Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í „Miðgerði, Vestmannaeyjum – Gatnagerð og fráveitu“.
Um er að ræða gatnagerð og lagnavinnu vegna gatnaframkvæmda við Miðgerði í Vestmannaeyjum.
Helstu magntölur
- · Skeringar 2.000 m³
- · Klöpp 200 m³
- · Gröftur 2.900 m3
- · Fylling 1.300 m3
- · Söndun 500 m3
- · Fráveitulagnir, Ø150 165 m
- · Fráveitulagnir, Ø250 600 m
- · Ný niðurföll 10 stk.
- · Götulýsing, jarðstrengir 250 m
- · Ljósastólpar 8 stk.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef COWI frá kl. 17:00 þann 8. apríl 2026.
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvefinn fyrir kl. 14:00 þann 20. apríl 2026.
Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.












