Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Hjólfara­fyll­ingar og axla­viðgerð­ir á Vest­ur, Norður og Austur­svæði 2026

Opnun útboðs: Hjólfara­fyll­ingar og axla­viðgerð­ir á Vest­ur, Norður og Austur­svæði 2026

4
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hjólfarafyllingar, afréttingar og lagfæringar á öxlum með flotbiki (Micro surfacing) á vegum á Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði árið 2026.

Helstu magntölur eru:

  • Norðursvæði – Hjólfarafylling, með flotbiki                     43.482 m2
  • Vestursvæði – Hjólfarafylling, með flotbiki                     40.000 m2
  • Austursvæði – Hjólfarafylling, með flotbiki                     15.000 m2

 Samtals: 98.482 m2

Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 20. mars 2026

Tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.