Home Fréttir Í fréttum ‏Skrif­stofu­turnar seljast á allt að 90% af­slætti

‏Skrif­stofu­turnar seljast á allt að 90% af­slætti

2
0
Ljósmynd: epa

Miklar verðlækkanir hafa orðið á markaði með skrifstofubyggingar í Bandaríkjunum.

Verulegar verðlækkanir hafa orðið á markaði með skrifstofuhúsnæði í Bandaríkjunum. Dæmi eru um að stórar skrifstofubyggingar hafi nýlega verið seldar á 90% lægra verði en þær fóru áður á, að því er kemur fram í umfjöllun The Wall Street Journal.

Fjárfestirinn Marc Calabria, sem sérhæfir sig í fasteignaþróun, festi nýlega kaup á 45 þúsund fermetra skrifstofubyggingu í Chicago fyrir 4 milljónir dala, eða tæplega hálfan milljarð króna. Til samanburðar gekk byggingin kaupum og sölu fyrir áratug síðan á 68,1 milljón dala, eða um 8,4 milljarða króna miðað við núverandi gengi krónunnar.

Í umfjölluninni er tekið annað dæmi um 5,3 milljóna dala kaup fjárfestisins Asher Luzzatto á Denver Energy Center, sem samanstendur af tveimur stórum skrifstofubyggingum, í nauðungarsöluferli. Fasteignin var seld fyrir 176 milljónir dala árið 2013.

Bent er á að meira að segja bandaríska stjórnsýslustofnunin General Services Administration (GSA) hafi selt 87,3 þúsund fermetra auða skrifstofubyggingu í Washington til fasteignaþróunarfélags, sem sérhæfir sig í að umbreyta slíkum byggingum í íbúðarhúsnæði, fyrir 24 milljónir dala, eða um 3 milljarða króna, sem er aðeins lítið brot af virði byggingarinnar fyrir nokkrum árum síðan.

Fasteignafélög og lánveitendur þeirra héldu margir hverjir í skrifstofuturna sína árum saman í von um viðsnúning eftir Covid-faraldurinn. Nú eru margir þeirra búnir að sætta sig við gífurlegt tap. Jafnframt hafa fjárfestar þurft að sætta sig við hærra vaxtastig sem hefur í för með sér lægra eignaverð og gerir þeim erfiðara fyrir að fjármagna fasteignakaup.

Tekið er fram að eignasölur með svo miklu sölutapi eigi einkum við lúið skrifstofuhúsnæði á lítt eftirsóttum stöðum. Eigendur hágæða skrifstofuturna á bestu stöðum í New York og vinsælum svæðum í San Franvisco séu t.d. að hækka leiguverð og selja byggingar með hagnaði.

Á heildina litið endurspegli flest viðskipti þó mikla kólnun á markaðnum. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu Green Street hefur meira að segja meðalverð eigna í hærri gæðaflokkum lækkað um 35% frá því sem mest lét.

Heimild: Vb.is