Vegagerðin óskar eftir tilboðum í Yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2026, blettanir með klæðingu.
Helstu magntölur eru:
- Blettun á Vestursvæði með þjálbiki 140.000 m2
- Blettun á Norðursvæði með þjálbiki 150.000 m2
- Flutningur steinefna 88.000 m3 *km
- Flutningur bindiefna 37.500 m3 *km
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 20. mars 2026.
Tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. apríl 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.












