Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar halda áfram og miða vel áfram samkvæmt verkáætlun. Vinna við ytri byrði nýbyggingarinnar er langt komin og unnið er að frágangi utanhúss samhliða áframhaldandi framkvæmdum innanhúss.
Innivinna stendur nú yfir á mörgum sviðum, þar á meðal við lagnakerfi, uppsetningu milliveggja og frágang tæknirýma. Jafnframt er hafinn undirbúningur fyrir næstu áfanga verkefnisins, svo sem skipulagningu innréttinga og áætlunargerð vegna tækjakaupa og annars búnaðar sem til þarf við starfsemi deildarinnar.

„Framkvæmdir ganga vel og eru í góðu samræmi við gildandi verkáætlun,“ segir Kristinn Jakobsson, verkefnastjóri hjá NLSH.
Heimild: NLSH.is












