Home Fréttir Í fréttum Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið

Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið

296
0
Canexel klæðning. Þ. Þorgrímsson & co var gert að greiða hjónum yfir 5 milljónir króna auk 2,5 milljóna í málskostnað vegna galla í klæðningunni. Ljósmynd/Aðsend

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrirtækið Þ. Þorgrímsson & Co. ehf. til að greiða hjónum 5.376.480 krónur í skaðabætur vegna galla á utanhússklæðningu á sumarhúsi þeirra.

Fyrirtækið, sem var söluaðili klæðningarinnar, var jafnframt dæmt til að greiða 2,5 milljónir króna í málskostnað.

Féllst á bótaskyldu en lækkaði kröfuna

Málið snýr að svokallaðri Canexel-utanhússklæðningu sem hjónin keyptu árið 2009. Við sölu var vísað til þess að allt að 25 ára ábyrgð væri á klæðningunni. Ábyrgðin var þó skilyrt, þannig að veitt var 15 ára ábyrgð á yfirborði eða lakki en 25 ára ábyrgð á efnisborðunum sjálfum. Ábyrgðin var jafnframt háð frekari takmörkunum, meðal annars vegna rakabreytinga og áskilnaðar um árleg þrif klæðningar.

Stefnendur kröfðust tæplega 9 milljóna króna í bætur vegna umfangsmikilla skemmda á klæðningunni, sem meðal annars fólust í því að yfirborð hennar sprakk og flagnaði, vatn komst inn í efnið og klæðningin tók að bólgna, bylgjast og afmyndast.

Dómurinn féllst á bótaskyldu stefnda en lækkaði kröfuna verulega.

Litið til fullyrðinga um endingu og ábyrgð

Í málinu lá fyrir matsgerð um ástand klæðningarinnar og kostnað við úrbætur, en matsmenn voru ekki á einu máli. Annar þeirra taldi að gallar væru verulegir á efninu en að uppsetning og frágangur hefðu ekki verið í samræmi við leiðbeiningar, sem gæti skýrt sprungur, raka og aðrar skemmdir. Hinn taldi hins vegar að ekki væri unnt að rekja skemmdirnar með afgerandi hætti til galla í efninu sjálfu og benti á að þær gætu að hluta stafað af ytri þáttum, svo sem veðrun, raka eða viðhaldsleysi.

Dómurinn taldi, þrátt fyrir mismunandi sýn matsmanna, stefnendur sýna fram á að þeir hefðu orðið fyrir tjóni sem stefndi bæri ábyrgð á. Í niðurstöðu dómsins er meðal annars litið til þess hvernig varan var kynnt við sölu, þar á meðal fullyrðingar um endingu og ábyrgð. Var talið að stefnendur hefðu mátt byggja á þeim upplýsingum þegar þeir ákváðu að kaupa klæðninguna.

Stefnendur kröfðust tæplega 9 milljóna króna í bætur vegna umfangsmikilla skemmda á klæðningunni, sem meðal annars fólust í því að yfirborð hennar sprakk og flagnaði, vatn komst inn í efnið og klæðningin tók að bólgna, bylgjast og afmyndast. Mynd úr safni. Ljósmynd/Aðsend

Þolir ekki íslenska veðráttu

Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjónanna, hefur komið að fleiri málum sem tengjast Canexel-klæðningu fyrirtækisins. Hann segir niðurstöðuna í samræmi við fyrri dóma og bendir á að í málflutningi hafi komið fram hjá lögmanni fyrirtækisins að um 4 þúsund hús hér á landi hafi verið klædd með sams konar efni.

„Niðurstaðan er sú sama og í öðrum dómsmálum. Þessi klæðning þolir ekki íslenska veðráttu,“ segir Einar og vísar til þess að matsmenn, sérfróðir meðdómendur og dómstólar á öllum dómstigum hafi ítrekað komist að svipuðum niðurstöðum.

Hann ítrekar að markaðssetning vörunnar hafi haft veruleg áhrif á ákvarðanir kaupenda. „Það er verið að auglýsa klæðningu sem viðhaldsfría og með 25 ára ábyrgð. Menn verða að standa við slíkar ábyrgðaryfirlýsingar ef á reynir.“

Einar segir svo langar ábyrgðir óvenjulegar og tekur dæmi um ábyrgð á öðrum vörum á borð við bíla sem gjarnan séu seldir með 7 ára ábyrgð eða skemmri.

Tjónið felst einnig í umtalsverðum framkvæmdum

Að sögn lögmannsins felst tjón hjónanna og annarra kaupenda ekki aðeins í gölluðu efni heldur einnig í umfangsmiklum framkvæmdum. „Það þarf að rífa klæðninguna af, kaupa nýja sem hentar íslenskum aðstæðum og setja þá nýju upp. Klæðningin sjálf er jafnvel minnsti kostnaðarliðurinn,“ segir Einar.

Hann undirstrikar að kaupendur hafi ítrekað unnið mál á öllum dómsstigum gegn Þ. Þorgrímsson & Co. ehf. vegna Canexel-klæðninganna. Það að nokkur þúsund hús hér á landi séu klædd með Canexel-klæðningu, eins og kom fram í málflutningi lögmanns fyrirtækisins, bendir til að fleiri kaupendur kunni að vera í svipaðri stöðu.

Heimild: Mbl.is