Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú ganga vel og brúin er að taka á sig mynd. Staðarstjóri hjá verktakanum segir engar tafir hafa orðið á verkinu og segir eftirvæntingu eftir nýrri brú.
Ný Ölfusárbrú er með stærri verkefnum í vegagerð sem ráðist hefur verið í hér á landi og áætlaður kostnaður er um 18 milljarðar króna. Áætluð verklok eru 2028. Framkvæmdin er að taka á sig mynd.
Skúli Sigvaldason, staðarstjóri hjá ÞG verktökum, segir veðrið ekki hafa verið til vandræða. „Veturinn hefur verið mjög góður og okkur mjög hliðhollur. Við höfum getað verið á fullu spani í allan vetur og það hefur bara verið glimrandi gott veður,“ segir hann.
Að meðaltali eru um 40 manns að vinna á svæðinu á hverjum degi. „Bæði smiðir, járnamenn, jarðvinnuverktakar og þess háttar,“ segir Skúli.
Vegagerðin hefur lagt til að stakt veggjald fyrir fólksbíl yfir brúna verði 495 krónur en magnafsláttur fyrir fleiri ferðir.
Ekkert óvænt tafið framkvæmdir
Framkvæmdin er farin að taka á sig mynd. „Við erum á fullu að gera tilbúið fyrir komu stálbita í brúardekkið,“ segir Skúli. Þeir berast eftir um tvær vikur. „Við munum þurfa að koma þeim saman á fyllingunni austan við Ölfusárbrúna. Þar munum við sjóða bitana saman áður en við ýtum brúnni yfir,“ segir hann.
Enn hafi ekkert óvænt komið upp á sem gæti tafið framkvæmdir. „Verkið er á áætlun núna og gengur bara mjög vel. Öll vegagerð hefur gengið mjög vel frá upphafi,“ segir Skúli. „Við erum líka langt komnir með að klára mislæg gatnamót hérna austan við Selfoss og steypum yfirbygginguna eftir um það bil tvær vikur.“
Íbúar spenntir fyrir að losna við umferðina yfir gömlu brúna
Selfyssingar hafa löngum kvartað undan umferðaröngþveiti við gömlu Ölfusárbrúna á álagstímum. Nýja brúin mun breyta miklu enda liggur hún austar og færir umferðina fjær þéttbýlinu.
„Það er rosalega góður meðbyr með þessari framkvæmd hérna í kringum Selfoss og við upplifum það svo sannarlega,“ segir Skúli.
Heimild: Ruv.is












