Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Fréttir af uppsteypu meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut

Fréttir af uppsteypu meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut

278
0
Mynd: NLSH ohf.

Uppsteypuverkefnið á nýjum meðferðarkjarna miðar ágætlega áfram, en aðalverktaki uppsteypu verksins er Eykt hf.

<>

Verkið gengur ágætlega og þeir helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypuna eru áframhaldandi vinna við mótauppslátt, járnabendingu undirstaðna og jarðskaut sem er vel á veg kominn.

Vinna við fyllingar og lagnir í grunni er í fullum gangi og einnig vinna við botnplötur. Einnig er vinna við kjallaraveggi í fullum gangi og vinna við fyrstu súlur hófst í byrjun september.

Nú í nóvember verður farið í fyrstu loftaplötur yfir kjallara og áætlað að sú vinna hefjist fljótlega”,segir Eysteinn Einarsson staðarverkfræðingur hjá NLSH.

Heimild: NLSH.is.