Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Réttarholtsskóli – B álma, endurbætur

Réttarholtsskóli – B álma, endurbætur

106
0
Réttarholtsskóli. Loftmynd sem sýnir lágbyggingar - álmur A, B og C.
Um áramótin hófust framkvæmdir við endurgerð B-álmu Réttarholtsskóla.
Í B-álmu eru tæknirými og fjórar kennslustofur sem verða uppfærðar samkv nýjustu kennslutækni.
Í framhaldi af endurgerð B álmu verður farið í uppfærslu á A-álmu.
Í A álmu eru tvær kennslustofur ásamt mötuneyti nemenda.
Nú þegar hefur verið lokið við endurgerð C álmu. Álmurnar voru byggðar í áföngum frá 1956 til 1970 og má segja að tími hafi verið kominn á endurnýjun.
Það sem verður gert er meðal annars er að horft er til nýjustu krafna og reglugerða má þar nefna öryggis og tæknimál, endurnýjun þakvirkis, einangrun í útveggjum, ljósvist og hljóðvist ofl.

Verkfræðistofan Efla hefur eftirlit með framkvæmdum.

<>

Verktakar:

Smiðir: Endurbætur ehf
Múrarar: Ari Oddson ehf
Píparar: Húsalagnir ehf
Rafvirkjar: Straumkul ehf
Málarar: HIH málun ehf
Áætluð verklok 1.ágúst 2024
Heimild: Reykjavik.is