Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Þingskálavegur (268), Heiði – Bolholt

Opnun útboðs: Þingskálavegur (268), Heiði – Bolholt

337
0

Opnun tilboða 9. janúar 2024. Endurbygging, breikkun og klæðingu Þingskálavegar (268) frá Heiði á Rangárvöllum að Bolholti. Heildarlengd útboðskaflans er um 7,5 km.

<>

Verkið felst að stærstum hluta til í breikkun núverandi vegar sem er að jafnaði 5-6 m breiður, upp í 6,5 m breiðan veg.

Vinna skal og leggja til burðarlag (0/22 mm) og styrktarlag (0/63 mm) og leggja klæðingu á allan vegkaflann með tilheyrandi lagfæringum á vegfláum til að auka umferðaröryggi.

Færa þarf veglínu að hluta á um 300 m kafla um Heiðarlæk til vesturs.

Helstu magntölur eru:

  • – Skeringar  5.500 m3
  • – Bergskeringar í námu  18.500 m3
  • – Fyllingar 25.000 m3
  • – Styrktarlag 0/63  10.400 m3
  • – Burðarlag 0/22     8.200 m3
  • – Tvöföld klæðing   47.900 m2
  • – Frágangur fláa     62.900 m2

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2024.