Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Ætla að koma allri starf­semi IKEA á einn stað

Ætla að koma allri starf­semi IKEA á einn stað

386
0
Eins og sjá má eru vinnuvélar mættar í hraunið til að sinna jarðvegsvinnu. Myndin var tekin í morgun. VÍSIR/VILHELM

Miklar framkvæmdir eru hafnar við IKEA í Kauptúni í Garðabæ sem miða að því að koma allri starfsemi fyrirtækisins á einn stað. Að framkvæmdum loknum mun IKEA loka vöruhúsum sínum við Suðurhraun 10 og Kauptúni 3 í Garðabæ.

<>

Stefán R. Dagsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, segir að framkvæmdir hafi hafist þann 3. október síðastlðinn. Þá hafi verið búið að klára skipulagsvinnu og öll leyfi verið komin í hús.

Teikningar af nýja vöruhúsinu.
AÐSEND

Hann segir að IKEA muni eftir breytingar stækka um rúmlega þriðjung, um 12.500 fermetra. „Þetta er mjög spennandi. Húsnæði okkar í Kauptúni 4 er löngu sprungið. Nú er verið að undirbúa jarðveginn, koma öllu í rétta hæð, til að geta svo hafið sjálfa byggingavinnuna. Sá verkþáttur mun standa eitthvað fram á vor enda mikill jarðvegur sem þarf að flytja í burtu,“ segir Stefán.

Stefán R. Dagsson er framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi.
IKEA

Stefán segir að til standi að reisa nýtt vöruhús, nýja vörumóttöku, nýja skrifstofubyggingu sem og tengibyggingu milli nýju byggingarinnar og verslunarinnar sem fyrir er.

„Við erum þegar byrjuð að byggja sérstaka tæknibyggingu, sem verður þá inntak fyrir vatn og rafmagn,“ segir Stefán.

Teikning af nýja húsinu.
AÐSEND

Framkvæmdastjórinn segist gera ráð fyrir að verkið verði tilbúið síðla árs 2024.

„Verslunin sjálf stækkar ekki en við stækkum lagerinn verulega og svo verða skrifstofur fyrirtækisins stækkaðar og sameinaðar á einn stað.

Stækkunin felur einnig í sér stækkun á heimsendingasvæðinu okkar og betri aðstöðu fyrir þjónustu sem við hófum í upphafi faraldursins – Smelltu og sæktu. Þá fáum við aðstöðu til að bjóða upp á nýjar lausnir sem verða kynntar síðar til sögunnar.

Framkvæmdir eru hafnar í Kauptúni í Garðabæ.
VÍSIR/VILHELM

Framkvæmdirnar hafa gengið mjög vel til þessa og eru á áætlun. Það verður mikil hagræðing í þessu fyrir okkur en mun einnig fela í sér þægindi fyrir viðskiptavini þar sem þeir muni ekki þurfa að fara á marga staði til að sækja vörur,“ segir Stefán.

Hann segir að aðkoma að versluninni sjálfri verði óbreytt og framkvæmdir muni ekki raska neinu fyrir framan versluninna.

Í fundargerð bæjarstjórnar Garðarbæjar, þar sem fjallað er um fyrirhugaðar framkvæmdir, segir að lóð IKEA muni stækka um 16.866 fermetra og fara úr 56.403 fermetra í 73.269 fermetra.

AÐSEND

Heimild: Visir.is