Home Fréttir Í fréttum Fyrsti áfangi gagnavers atNorth á Akureyri reistur á 4 mánuðum

Fyrsti áfangi gagnavers atNorth á Akureyri reistur á 4 mánuðum

276
0
Mynd: Kaffid.is

Framkvæmdir við byggingu gagnavers atNorth við Hlíðarvelli á Akureyri ganga vonum framar.

<>

Í vikunni voru síðustu þaksperrurnar í fyrstu byggingu gagnaversins reistar og af því tilefni var efnt til reisugillis fyrir helstu samstarfsaðila, verktaka og starfsfólk þeirra. Helstu verktakar við byggingu gagnaversins eru byggingafyrirtækin Perago Bygg og Lækjarsel, lagnafyrirtækið Áveitan, rafverktakinn Rafeyri og jarðvinnuverktakinn Finnur ehf.

Hönnun hefur verið í höndum AVH, Raftákns, Verkíss á Akureyri og Elhönnunar. Meðfylgjandi myndir voru teknar af því tilefni.

Framkvæmdir hófust um miðjan júlí og stefnt er að því að hefja reksturinn fyrir mitt ár 2023. Fyrsti áfangi gagnaversins er um 2.500 fermetrar í tveimur samtengdum byggingum, en fullbyggt verður gagnaverið í fimm byggingum.

Að auki er gert ráð fyrir þremur skrifstofu- og þjónustuhúsum á lóð atNorth. Gagnaverið er það fyrsta sinnar gerðar á svæðinu og mun nýtast viðskiptavinum atNorth á margvíslegan hátt – sérstaklega þeim sem vilja tryggja landfræðilegann aðskilnað gagna sem eru þegar hýst í öðrum gagnaverum.

RÍK ÁHERSLA LÖGÐ Á AÐ LÁGMARKA UMHVERFISÁHRIF

Byggingarefni og -aðferðir í nýja gagnaverinu taka mið af umhverfis- og innkaupastefnu atNorth þar sem áhersla er lögð á að velja ávallt fyrst umhverfis- eða sjálfbærnivottaðar vörur. Þannig kemur allt timbur í burðarvirki úr sjálfbærum skógum á Norðurlöndum og steinullin frá Steinull á Sauðarkróki kemur úr umhverfisvottaðri framleiðslu.

Markmiðið er því að lágmarka kolefnisspor  framkvæmdarinnar með innlendum byggingalausnum og árvekni gagnvart umhverfinu. Þá leitar atNorth nú samstarfsaðila til að nýta varmamyndun í gagnaverinu til frekari verðmætasköpunar í grænum iðnaði sem gæti minnkað kolefnisfótspor verkefnisins enn frekar.

Í reisugillinu þakkaði Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, verktökum fyrir frábært starf og bæjaryfirvöldum fyrir skýra sýn við uppbygginguna að Hlíðarvöllum.

„Framkvæmdir hafa gengið ótrúlega vel og maður trúir því varla, að í dag séu rétt um fjórir mánuðir frá samþykkt deiliskipulags fyrir svæðið. Sú staðreynd er góður vitnisburður um ykkur og gerir Akureyri að frábærum kosti fyrir þá sem vilja ráðast í uppbyggingu af hvaða tagi sem er,“ sagði Eyjólfur Magnús.

Hann rifjaði upp forsendur þess að gagnaverinu var fundinn staður á Akureyri, en framboð á margvíslegri tækni- og rekstrarþjónustu var einn lykilþátta við staðarvalið auk tryggs framboðs og flutnings á raforku, með tilkomu Hólasandslínu.

Heimild: Kaffid.is