Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Grunnur að fjölbýlishúsi í Grundarfirði

Grunnur að fjölbýlishúsi í Grundarfirði

193
0
Horft yfir byggingarsvæðið í fallegu haustveðri í gær. Ljósm. tfk.

Góður gangur er í framkvæmdum við Grundargötu í Grundarfirði en þar mun á næstu misserum rísa níu íbúða fjölbýlishús.

<>

Verktakar hafa lokið við að grafa fyrir húsinu og nú er kominn myndarlegur grunnur sem húsið mun standa á.

Húsið er við Grundargötu 12-14 og í því verða þrjár stúdíó íbúðir, fjórar tveggja herbergja íbúðir og tvær þriggja herbergja íbúðir.

Heimild: Skessuhorn.is