Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Skagafjörður. “Leikskólinn Ársalir – Viðbygging 2021”

Opnun útboðs: Skagafjörður. “Leikskólinn Ársalir – Viðbygging 2021”

207
0
Mynd: Sveitarfélagið Skagafjörður

Fundur hjá Byggðarráð Skagafjarðar þann 29. júlí 2021 kl. 11:30

<>

Ársalir skólabygging

Undir þessum dagskrárlið sat Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs.

Kynnt var niðurstaða opnunar tilboða í útboðsverkið “Leikskólinn Ársalir – Viðbygging 2021” en í verkinu felst bygging leikskólastofa í tveimur áföngum við eldra stig leikskólans Ársala.

Skal fyrri áfanga lokið 15. desember 2021 en síðari áfanga 1. ágúst 2022.

Eitt tilboð barst frá Eðalbyggingum ehf. – SG Hús.

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli tilboðsins að gættu ákvæði 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga um gerð viðeigandi viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.