Home Fréttir Í fréttum Næstu skref að Fossvogsbrú

Næstu skref að Fossvogsbrú

137
0
Brú yfir Fossvog er ætluð fyrir gangandi, hjólandi og umferð almenningsvagna yfir Fossvog.

Fyrra þrep í framkvæmdaráætlun Fossvogsbrúar er hafið en brúin er hluti af fyrstu framkvæmdalotu Borgarlínunnar.

<>

Ríkiskaup bauð til opinnar hönnunarsamkeppni fyrir hönd Vegagerðarinnar um útlit og hönnun brúar yfir Fossvog og var skilafrestur 21. maí 2021.

 

Samkeppnin er í tveimur þrepum og er nafnleyndar gætt á báðum þrepum fyrir milligöngu trúnaðarmanns sem annast öll samskipti við þátttakendur/keppendur.

Alls voru 15 teymi sem skiluðu inn tillögum í fyrra þrep.

 

Upplýst verður um niðurstöður úr fyrra þrepi í ágúst 2021 og hefst þá seinna þrep hönnunarsamkeppninnar sem er lokað öðrum en höfundum valdra tillagna.

Endanleg úrslit munu liggja fyrir í desember 2021. Hönnun lýkur í desember 2022 og framkvæmdir verða 2023 – 2024.

 

Brú yfir Fossvog er ætluð fyrir gangandi, hjólandi og umferð almenningsvagna yfir Fossvog, frá flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar vestan Nauthólsvíkur yfir á norðausturhluta Kársnestáar.

Heimild: Kopavogur.is