Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Slitlag lagt á gamla hringveginn milli Hvanneyrar og Hvítárbrúar

Slitlag lagt á gamla hringveginn milli Hvanneyrar og Hvítárbrúar

236
0
Mynd: STÖÐ 2/FRIÐRIK ÞÓR HALLDÓRSSON.

Brú, sem margir telja þá fegurstu á Íslandi, gamla Hvítárbrúin í Borgarfirði, hefur núna loksins verið tengd malbiki og um leið losna vegfarendur við holóttan sveitaveg sem í gamla daga hafði þann sess að vera hluti hringvegarins. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2.

<>

Malbikið náði bara að afleggjaranum að Hvanneyri en áður en Borgarfjarðarbrúin var opnuð árið 1981 var þetta hluti hringvegarins um Borgarfjörð.

En svo missti vegarkaflinn þetta mikilvega hlutverk sitt og varð í staðinn innansveitarvegur og sem slíkur þjónar hann meðal annars því sögufræga stórbýli Hvítárvöllum.

Vegurinn heitir núna Grímarsstaðavegur í bókum Vegagerðarinnar. Bærinn Hvítárvellir á vinstri hönd.
STÖÐ 2/FRIÐRIK ÞÓR HALLDÓRSSON.

En núna er búið er að endurbyggja þennan sex kílómetra kafla, taka af blindhæðir og rúna verstu beygjurnar og leggja á hann slitlag alla leið að gömlu Hvítárbrúnni. Starfsmenn Borgarverk hófu verkið síðastliðið haust og eru núna á lokametrunum, eiga bara eftir seinna lagið af klæðningu. Þeir finna fyrir ánægju Borgfirðinga með vegabæturnar.

„Enda var þetta vegur sem var orðinn mjög lélegur, holóttur og erfitt að halda við.

Þetta er bylting fyrir þá sem þurfa að nota veginn,“ segir Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks, sem tók að sér verkið fyrir 95 milljónir króna sem lægstbjóðandi en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 103 milljónir króna.

Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks. Bærinn Ferjukot handan Hvítár sést í baksýn.
STÖÐ 2/FRIÐRIK ÞÓR HALLDÓRSSON.

-Þetta var nú einu sinni aðalvegurinn.

„Já, já. Þar sem við stöndum núna var Hvítárvallaskáli, aðaláningarstaðurinn á leiðinni til Reykjavíkur.“

-Og bara fyrir nærri 40 árum, þá var þetta þjóðbrautin norður í land og vestur um land.

„Já. Og þetta aðalbrúin.“

Hvítárbrúin er orðin 92 ára gömul og kannski kominn tími til að hún verði heiðruð með almennilegri vegtengingu en áður var búið að setja slitlag á örstuttan kafla við brúarsporðinn Ferjukotsmegin.

„Þetta er náttúrlega fallegasta brú landsins og á fallegasta svæði landsins,“ segir Borgfirðingurinn Óskar Sigvaldason.

Heimild: Visir.is