Home Fréttir Í fréttum Einbreiðum brúm fækkar um þrjár á árinu

Einbreiðum brúm fækkar um þrjár á árinu

219
0
Mynd: Fib.is

Ef áætlanir ganga eftir mun einbreiðum brúm á Hringveginum fækka um þrjár á þessu ári.

<>

Þeim mun síðan fækka aftur um sama fjölda á árinu 2021. Um 36 einbreiðar brýr eru á landinu núna.

Nú standa yfir framkvæmdir við byggingu tveggja brúa sem Ístak er að byggja fyrir Vegagerðina við Hringveginn á Suðurlandi.

Vinna við brýnarnar yfir Steinavötn í Suðursveit og Kvía í Öræfum ganga vel og að öllu óbreyttu verða þær teknar í notkun í haust.

Tafir hafa hins vegar orðið á byggingu brúarinnar yfir Fellsá í Suðursveit sem og Brunná í Fljótshverfi.

Til stendur að byggja nýja brú á Jökulsá á Sólheimasandi og Hverfisfljót í Skaftárhreppi en útboð á þeim framkvæmdum hefur ekki farið fram.

Heimild: Fib.is