Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Framkvæmdir við Flugvelli í Reykjanesbæ í fullum gangi

Framkvæmdir við Flugvelli í Reykjanesbæ í fullum gangi

87
0
Séð yfir Flugvelli Mynd: VF.is

Gert er ráð fyrir því að gatnagerð við klárist í október eða nóvember að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar, sviðsstjóra Umhverfissviðs Reykjanesbæjar.

<>

Miklar framkvæmdir standa nú þar yfir en á svæðinu verður bíla- og flugtengd starfsemi, svo sem bílaleigur, bensínstöð og fleira. Þá verður ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja einnig á svæðinu.

„Það er búið að úthluta flestum lóðunum. Nú á eftir að sortera úr haugunum hérna og taka meðalgildi mengunar í jarðveginum,“ segir Guðlaugur, en í maí síðastliðnum stöðvaði Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja framkvæmdirnar þegar gamlir ruslahaugar frá bandaríska hernum voru grafnir upp á svæðinu. Einnig fannst tjara í jarðveginum. „Öll mengun er komin upp á yfirborðið en það eru einhver ákveðin efni yfir gildum sem þarf að skoða. Nú er verið að endurmæla,“ segir Guðlaugur.

Íslenskir aðalverktakar eru framkvæmdaaðili á svæðinu en kostnaðaráætlun hljóðar upp á 500 milljónir króna.

Heimild: Vf.is