Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Verður algjör lúxus segir verksmiðjustjórinn

Verður algjör lúxus segir verksmiðjustjórinn

64
0
Framkvæmdir við nýbyggingar og endurbætur hjá Loðnuvinnslunni ganga vel. Mynd/Óðinn Magnason

Stefnan er að húsið verði klárt seinnipartinn í sumar þegar hefðbundin makrílvertíð ætti að vera,“ segir verksmiðjustjóri Loðnuvinnslunnar um nýbyggingu á Fáskrúðsfirði.

„Það má segja að nýja flokkunar- og vinnsluhúsið sé orðið fokhelt. Það var verið að setja aðra keyrsluhurðina í,“ segir Magnús Ásgrímsson, verksmiðjustjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði.

Sagt var frá því í Fiskifréttum í maí í fyrra að byggt yrði við löndunarhús Loðnuvinnslunnar og nýr búnaður keyptur.

„Stefnan er að húsið verði klárt seinni partinn í sumar þegar hefðbundin makrílvertíð ætti að vera,“ segir Magnús verksmiðjustjóri.

Mynd/Óðinn Magnason

Vigtarreglugerðin vigtaði mest

Framkvæmdir hafi gengið vel.

„Það sem ýtti mest á þetta var breytingar á vigtarreglugerðinni. Við höfum fram að þessu vigtað bara hratið og fullunnu afurðirnar en núna er skylda að vigta fiskinn fyrir meðhöndlun,“ segir Magnús. Ekki hafi verið pláss í gamla húsinu fyrir flæðivogir.

„Af því að við þurftum að fara að breyta þessu lá alveg fyrir að það væri langsniðugast að færa flökunina á staðinn fyrst það þurfti að byggja þarna. Þá flokkum við beint inn á flökunarvélarnar eins og aðrir,“ lýsir Magnús.

Voru ekki með skiljur fyrir framan SR-tromlurnar

Að sögn Magnúsar kemur síðan nýtt bræðslulöndunarhús við hliðina á vinnsluhúsinu. Þar verði fyrst og fremst búnaðurinn úr gamla löndunarhúsinu. Það sem mest hafi staðið þeim fyrir þrifum sé að hafa ekki verið með skiljur fyrir framan hinar hefðbundnu SR-tromlur.

„Það eru flestir komnir með skammtara fyrir framan, sem er eiginlega nauðsynlegt þegar það er verið að vakúmlanda afla,“ segir Magnús.

Miklu flottari búnaður

Einnig má nefna nýjan útskipunarbúnað fyrir mjölið í staðinn fyrir frumstæðari búnað sem lá beint út á bryggjuna fyrir neðan verksmiðjuna en þurfti að víkja.

„Nú erum við búnir að leggja mjöldragara sem flytur mjölið út á næstu bryggju fyrir utan. Þar er kominn miklu flottari búnaður. Það er vökvastýrður rani sem við stjórnum með fjarstýringu,“ segir Magnús.

Gamli búnaðurinn  hafi verið orðinn þrjátíu ára.

Urðu stundum að sæta lagi

„Á þrjátíu árum hafa ekki bara skipin sem landa hér stækkað margfalt heldur hafa mjölskipin líka stækkað mikið. Hann var svo lágur búnaðurinn okkar og við urðum stundum að sæta lagi að koma þessu um borð á fjöru. Þannig að þetta verður algjör lúxus,“ segir Magnús.

Næsta skref er að sögn Magnúsar að færa frystinguna. „Það er kominn stór og flottur frystiklefi en uppsjávarfrystingin er innar í bænum þannig að það er verið að keyra flökin þangað. Vonandi kemur það fljótlega í framhaldinu ef ríkisstjórnin drepur okkur ekki alveg.“

Heimild: Fiskifrettir.vb.is