Home Fréttir Í fréttum 09.04.2026 Hreinsun stofnanalóða 2026-2027 – Reykjavík vesturhluti. EES

09.04.2026 Hreinsun stofnanalóða 2026-2027 – Reykjavík vesturhluti. EES

10
0
Mynd: Reykjavik.is

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar  óskar eftir tilboðum í Hreinsun stofnanalóða 2026-2027 – Reykjavík vesturhluti, EES útboð nr. 16276.

Óskað er eftir tilboðum í hreinsun stofnanalóða samkvæmt þessum útboðsgögnum. Verkið felur í sér hreinsun og þvott á, bílastæðum í borgarlandi við stofnanir, ásamt hluta grunnskólalóða í vesturhluta Reykjavíkur með vélsópum og vatnsbílum eða vatnsgeymum með dælu og öðrum tækjum sem henta þyki. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 3. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00,  þann 9. apríl 2026.