
Fimmtíu og fimm íbúðir af alls áttatíu og fjórum í fjölbýlishúsinu á Hringbraut 116, gegnt JL-húsinu, eru komnar í útleigu, að sögn Þórarins Arnars Sævarssonar, eins eigenda Steindórs ehf., sem er eigandi að Steindórsreit.
Eignir sem eru í útleigu verða ekki auglýstar til sölu á leigutíma að sögn Þórarins.
28 eignir eru seldar og ein er auglýst til sölu. Sala á eigninni gekk til baka þar sem kaupandi náði ekki að selja sína eign að sögn Þórarins.
Kvaðir í skilmálum
Félagsbústaðir keyptu að sögn eigandans tíu af íbúðunum tuttugu og átta, bæði vegna kvaða í skipulagsskilmálum og svo í frjálsum samningum til viðbótar.
Heimild: Mbl.is











