Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í Hreinsun gatna og gönguleiða. EES útboð nr. 16274.
Óskað er eftir tilboðum í hreinsun gatna og gönguleiða samkvæmt þessum útboðsgögnum. Verkið felur í sér hreinsun og þvott á götum, bílastæðum við götu, gönguleiðum, grassvæðum í götunánd með vélsópum, sugum og vatnsbílum og öðrum tækjum sem henta þykir. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:30 þann 3. mars 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 8. apríl 2026.












