Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 17.03.2026 Hring­vegur (1) um Holtsnúp, hrun­varn­ir 2026

17.03.2026 Hring­vegur (1) um Holtsnúp, hrun­varn­ir 2026

25
0
Holtsnúpur undir Eyjafjöllum. Mynd: Sigurmundur Páll Jónsson

Vegagerðin býður hér með út hrunvarnir meðfram Hringveginum við Holtsnúp undir Eyjafjöllum. Skorið er inn í hlíðina á um 360 m kafla og efni notað í lagfæringu vegfláa á um 1000 m kafla. Hrunvarnir úr svokölluðum gabion grindum verða reistar á um 300 m kafla. Setja skal púða úr styrktarlagsefni undir gabion grindurnar. Verktaki skal vinna í vegfláum jafnóðum og eftir því sem verkinu vindur fram og í lokafrágangi. 

Helstu magntölur eru:

  • Skeringar, 4.200 m3
  • Fláafleygar, 3.200 m3
  • Styrktarlag, óunnið 0/90 700 m3
  • Frágangur fláa, 11.400 m2
  • Gabionar, 340 stk.

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 3. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. mars 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.