Fréttamaðurinn Kristján Már Unnarsson og eiginkona hans hafa kært byggingaframkvæmdir borgarinnar við leikskóla í Árbænum.
Kæran var kynnt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni en þar kemur meðal annars fram að kærendur hafi komist að því að til standi að reisa færanlegar kennslustofur á lóð leikskólans og að borgin hafi ekki talið þörf á grenndarkynningu þar sem framkvæmdin væri í samræmi við hverfisskipulag frá árinu 2019. Hjónin telja þó ljóst af umfangsmiklum lóðarframkvæmdum sem var ráðist í eftir áramótin að eitthvað meira standi til en að reisa tímabundnar kennslustofur.
„Fremur að verið sé að reisa varanlega byggingu sem ætlað er að standa áratugum saman, hið minnsta. Miðað við þá miklu fjárfestingu sem okkur virðist að verið sé að setja í grunn húsbyggingar, teljum við það hreina blekkingu að tala um „færanlegar kennslustofur“.“
Af hverfisskipulagi megi ráða að heimilt sé að byggja 220 fermetra færanlegar kennslustofur á lóðinni. Skipulagið sýni þó ekki hvar þessar stofur eigi að rísa sem að mati hjónanna er bagalegt þar sem stutt er í næstu íbúðahús.
Fara hjónin fram á að framkvæmdir verði stöðvaðar og áform borgarinnar send í grenndarkynningu þar sem íbúar fá að kynna sér eðli framkvæmdanna og áhrif þeirra. Eins svo íbúum gefist kostur á að leita ráða hjá lögfræðingum. Þau telja einnig að hverfisskipulag frá árinu 2019 hafi veitt borginni of víðtækar heimildir til að skerða réttindi íbúa.
„Við teljum raunar að með umræddri hverfisskipulagsbreytingu frá 2019 hafi Reykjavíkurborg veitt sér víðtækar heimildir til að skerða réttindi borgara til upplýsinga og andmæla, sem tryggð eru með lögum. Ennfremur virðist borgin hafa tekið sér nánast opna heimild til að byggt verði nánast hvar sem er á lóðum án tillits til nágranna og án þess að þeir séu upplýstir eða gefinn kostur til andmæla. Þannig séu borgarar sviptir mikilvægri réttarvernd. Vegna líklegrar verðmætarýrnunar eigna teljum við einnig 72. grein stjórnarskrár, um vernd eignarréttar, eiga við. Því beri að ógilda hverfisskipulagið í heild sinni.“
Hjónin taka fram að byggingar á leikskólalóðinni væru til þess fallnar að varpa skugga á lóð þeirra og girða fyrir útsýni yfir Elliðaárdalinn. Skuggavarp og skert útsýni sé til þess fallið að rýra verðmæti eignar hjónanna.
Heimild: Dv.is












