Fjarðabyggðarhafnir óska eftir tilboðum í verkið: Fjarðabyggðarhafnir Dýpkun 2026
Verkið er fyrsti hluti dýpkunar við nýbyggða bryggju á steyptum staurum við uppsjávarfrystihús Eskju á Eskifirði. Dýpka skal niður á -6,0m dýpi í sjávarkerfi.
Losunarstaður fyrir dýpkunarefni er í fyllingu undir sjávarmáli vegna væntanlegrar lengingar á hafnarbakka við Mjóeyri í Reyðarfirði.
Einnig er mögulegur losnunarstaður fyrir allt að 2/3 dýpkunarefnis í landfyllingu á Eskifirði. Verklok dýpkunar er 15.júlí 2026.
Magn dýpkunar er áætlað 68.000 m3.
| Útboðsgögn afhent: | 26.03.2026 kl. 21:00 |
| Skilafrestur | 13.04.2026 kl. 10:00 |
| Opnun tilboða: | 13.04.2026 kl. 10:00 |
Tilboði skal skila í gegnum útboðsvefinn https://mannvit.ajoursystem.net












