
Ökumaður snjóruðningstækisins sem handtekinn var í gær á gatnamótum Bústaðavegar og Skógarhlíðar, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, var starfsmaður verktaka sem starfar fyrir Vegagerðina.
Vegagerðin er ekki með nein snjóruðningstæki á sínum snærum en býður allan mokstur út. Á höfuðborgarsvæðinu starfa tveir verktakar fyrir Vegagerðina.
Vegagerðin mun ræða við verktakann
Þetta segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskipta hjá Vegagerðinni, í samtali við mbl.is.
„Við auðvitað lítum þetta mjög alvarlegum augum og munum fara yfir þetta með verktakanum, en það er hann sem tekur á bílstjóranum.“











