Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Súðavík: framkvæmdir við kalkþörungaverksmiðjuna hefjast innan skamms

Súðavík: framkvæmdir við kalkþörungaverksmiðjuna hefjast innan skamms

63
0
Halldór Halldórsson

Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri Kalkþörungaverksmiðjunnar segir að gert sé ráð fyrir að Lakogep, ungverski verktakinn mæti til Súðavíkur með mannskap 18. mars nk. Í framhaldi af því hefjist vinna við undirstöður.

„Við höfum látið vinna lóðina undir húsið í rétta hæð fyrir verktakann en verktakinn sjálfur klárar lóðina endanlega undir sökkul og plötu.

Verktakinn Tígur í Súðavík er að vinna að því að koma landfyllingunni í endanlega stærð eins og sjá má þessa dagana. Stór hluti þess er reyndar hráefnislón sem kalkþörungum er dælt upp í.“

Lakogep hefur fengið stöðuleyfi hjá Súðavíkurhreppi fyrir 20 gáma eða um 400 fermetra undir vinnuaðstöðu.

Heimild: BB.is