Home Í fréttum Niðurstöður útboða Niðurstaða í samkeppni um uppbyggingu á Dvergsreitnum í Hafnarfirði

Niðurstaða í samkeppni um uppbyggingu á Dvergsreitnum í Hafnarfirði

406
0
Frá fundi Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar þann 11.07.2017

Lögð fram niðurstaða í samkeppni um skipulag og uppbyggingu á Lækjargötu 2 (Dvergslóðinni).

Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillögu matsnefndar um uppbyggingu á Dvergsreitnum og leggur til að gengið verði til samninga við tilboðsgjafa GG verk ehf með þeim fyrirvara að raðhúsalengja (fjögur hús) bak við Gúttó falli út úr skipulaginu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir með bókun matsnefndar þar sem segir m.a.:
„Alls bárust fjórar tillögur sem voru ólíkar þótt þær bæru margar með sér líkan keim. Sameiginlegt eiga þær allar að byggja á baklóð við Gúttó. Var það einróma álit matsnefndarinnar að á þeim stað væri verið að taka besta stað lóðarinnar til útivistar og tengslin milli þess nýja og hinnar eldri byggðar með útisvæðinu sem teygir sig inn á milli húsanna yrði rofin.“Jafnframt verði skoðað í deiliskipulagsvinnunni með aðgang að bílastæðum fyrir húsin neðst í Brekkugötu.
Umsögn matsnefndar á tillögum.pdf
G 220 21.pdf
B17100-A1.pdf
B17100-greinargerð.pdf
P03839.pdf
P03839-greinagerð-minnkuð.pdf
Dvergshamar B17191.pdf
17114-Lækjargata 2- 2017-07-07-Einkunn.pdf
Lækjargata 2, samkepnni, opnum tilboða, fundargerð
Lækjargata 2 verðtilboð.pdf
Inngangur, umsögn matsnefndar.pdf
Dvergshamar B17191.pdf

Heimild: Hafnarfjörður.is

<>