Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Reykjanesbær undirritar hönnunarsaming við ARKÍS

Reykjanesbær undirritar hönnunarsaming við ARKÍS

225
0
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Aðalsteinn Snorrason frá Arkis handsala samninginn.

Á föstudag undirrituðu fulltrúar Reykjanesbæjar og arkitektastofunnar Arkis hönnunarsamning á nýjum grunnskóla í Reykjanesbæ.

<>

Áætlað er að Arkis skili aðaluppdrætti í ágúst nk. og að alútboðsgögn í 1. áfanga verði klár í lok september nk. Framkvæmdir við bráðabirgðaskólahúsnæði eru þegar hafnar og verður sú eining tilbúin í ágúst.

Reykjanesbær hyggst reisa rúmlega 10.000 m² skóla í Dalshverfi í Reykjanesbæ byggðan á samkeppnistillögu Arkís arkitekta frá febrúar 2017.

Skólinn mun hýsa leikskóla, grunnskóla, íþróttahús, sundlaug, tónlistarskóla og bókasafn ásamt tengdum rýmum. Tillagan var valin af byggingarnefnd skólans.

Heimild: Reykjanesbær.is