Home Fréttir Í fréttum Illa staðsettur kapall á Húsavík olli lífshættu fyrir verkamann

Illa staðsettur kapall á Húsavík olli lífshættu fyrir verkamann

193
0
Eins og sjá má á þessari mynd lá strengurinn aðeins rétt undir götunni. Mynd/Guðmundur Vilhjálmsson

Litlu munaði að verkamaður á vegum fyrirtækisins Garðvíkur á Húsavík stórslasaðist eða léti lífið í fyrradag þegar hann rak steypustyrktarjárn í gegnum rafmagnskapal í bænum. Rafmagnskapall Rarik lá átta sentimetrum undir malbiki en á samkvæmt reglugerðum að vera á tíu sinnum meira dýpi, eða á 70-90 sentimetra dýpi.

<>

Guðmundur Vilhjálmsson, eigandi fyrirtækisins, er að vonum ósáttur við að starfsmenn hans hafi verið í stórhættu þegar atvikið varð. „Mínir menn voru að vinnu við að laga kantstein á Húsavík þegar þetta átti sér stað. Við Baughól 52 erum við að reka steypujárn niður, nokkra sentimetra ofan í jörðina, þegar hann fer í gegnum þennan rafmagnskapal,“ segir Guðmundur. Og segir manninn heppinn að vera á lífi.

Guðmundur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Garðvíkur. Mynd/Guðmundur Vilhjálmsson 

„Það má í sjálfu sér furðu sæta að bani hafi ekki hlotist af, strengurinn er 400 volt og 250 amper á strengnum. Það sem varð manninum til lífs var að hann var í einangruðum skóm og gúmmíhandfang var á sleggjunni þegar hann rak í sundur strenginn.“

Strengurinn þessi liggur frá tengivirki að spennistöð og á að vera á miklu meira dýpi. Steingrímur Sigurður Jónsson, yfirmaður netreksturs RARIK á Norðurlandi, segir fyrirtækið hafa tekið yfir rekstur rafveitu á Húsavík á sínum tíma og því ekki lagt strenginn. Samt sem áður sé ábyrgðin þeirra. „Við munum taka til skoðunar þetta mál í heild sinni og skoða raflagnir á Húsavík. Það sem gerist þarna er að gatan er lækkuð á einhverju tímabili og því færist gatan nær strengnum,“ segir Steingrímur.

Hann beinir einnig þeim tilmælum til fólks að hafa samband áður en farið er í framkvæmdir. „Það er nokkuð algengt að farið sé í gegnum strengi og við erum boðnir og búnir til að aðstoða. Við mælum með að einstaklingar hafi samband við okkur og við skoðum stöðu strengja svo hægt sé að varast þá,“ bætir Steingrímur við.

Heimild: Visir.is