Aðgerðahópur fjögurra ráðuneyta sem mótar tillögur í húsnæðismálum hefur lokið störfum og er áætlað að kynna niðurstöður hópsins í næstu viku í fyrsta lagi. Þar verða tillögur að fjórtán aðgerðum í húsnæðismálum kynntar. Tillögurnar hafa ekki verið kynntar í ríkisstjórn og því hvílir enn nokkur leynd yfir þeim. Hópurinn var myndaður síðari hluta febrúarmánaðar.
Fréttablaðið hefur þó heimildir fyrir því að á meðal þeirra tillagna sem kynntar verði sé að ríkissjóður láti Reykjavíkurborg hafa sex lóðir vestan Kringlumýrabrautar sem hægt væri að skipuleggja fyrir íbúðabyggð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er með tillögunum einkum horft til aðgerða sem myndu koma millitekjufólki og lágtekjufólki til góða.
Samkvæmt tölum Þjóðskrár, sem Hagsjá Landsbankans vísaði til í gær, hefur fasteignaverð hækkað um tæp 23% á höfuðborgarsvæðinu á síðustu 12 mánuðum. Það þýðir að íbúð sem kostaði 50 milljónir í maí í fyrra kostar í dag tæpar 62 milljónir. Í Hagsjánni kemur líka fram að á árunum 2010-15 þróaðist fasteignaverð í nokkuð góðu samræmi við þætti eins og þróun kaupmáttar og byggingarkostnað. Verðið hefur hækkað verulega að undanförnu og mikið meira en þessir undirliggjandi þættir geta skýrt þannig að venjubundið samhengi hefur rofnað. Það virðist því sem skortur á framboði eigna sé sá þáttur sem hafi helst stýrt þróun fasteignaverðs síðustu mánuði.
Heimild: Visir.is