Í það minnsta 55 fórust í eldsvoða í Hong Kong. Búið er að slökkva eld í fjórum af átta íbúðarhúsum sem kviknaði í.
Slökkviliðið í Hong Kong tilkynnti í dag að 55 hefðu farist í eldsvoða í húsaþyrpingu í borginni. 51 fórst í eldsvoðanum og fjórir af völdum hans á sjúkrahúsi.
Eldur logaði í átta byggingum. Búið er að slökkva eldinn í fjórum þeirra og slökkviliðsmenn hafa náð tökum á eldi í þremur húsum.
Þrír voru handteknir vegna eldsvoðans, grunaðir um manndráp.
Um tvö þúsund íbúðir eru í húsunum átta og þar bjuggu 4.600 manns, margir þeirra aldraðir.
Heimild: Ruv.is












