Home Fréttir Í fréttum 12.04.2017 Freyjutorg, djúpgámar, hellulögn, lagnir og lýsing

12.04.2017 Freyjutorg, djúpgámar, hellulögn, lagnir og lýsing

328
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og Veitna er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Freyjutorg, djúpgámar, hellulögn, lagnir og lýsing. Útboð nr. 13927.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá þriðjudeginum 28. mars 2017.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.  Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:30  þann  12. apríl 2017.

Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
– Jarðvinna og fullnaðarfrágangur djúpgáma og skiltun þeirra við nýja grenndarstöð.
– Hliðfærsla hituveitulagnar í Óðinsgötu út fyrir djúpgámastæði
– Gerð torgs með setbekk á horni Freyjugötu og Óðinsgötu að sunnan.
– Hellulögn gatnamóta Óðinsgötu, Freyjugötu og Bjargarstígs
– Endurnýjun á hellulögn gangstétta sem liggja að nýjum hellulögðum gatnamótum
– Ný snjóbræðsla undir hellulögðum gatnamótum
– Færsla niðurfalla í jaðar hellulagðra gatnamóta, endurnýjun fráveitubrunns í miðju gatnamóta og tenging affalls snjóbræðslu inn á núverandi fráveitukerfi
– Endurnýjun gatnalýsingar og frágangur nýrrar lýsingar á torgi
– Frágangur raf- og stýrilagna í gatnamótum og torgsvæði, frágangur tengla fyrir ýmiss konar viðburði á svæðinu.

Lokaskiladagur er 4. ágúst 2017

Helstu magntölur eru:
•  Upprif á föstu yfirborði:  700 m²
•  Losun klappar:  40 m³
•  Uppgröftur: 115 m³
•  Malarfylling: 160 m³
•  Fráveita, lagnir:  20 m
•  Fráveita, brunnur:  1  m
•  Ný niðurföll og færsla niðurfalla: 4 stk.
•  Færsla hitveitulagnar, ø63mm: 25  m
•  Jarðstrengir: 140 m
•  Snjóbræðsla, ø25mm: 2.550 m
•  Stálskápur fyrir stjórnbúnað:  1 stk
•  Torgljós:  2 stk
•  Grásteinsbekkur:  1 stk
•  Leiktæki:  1 stk
•  Grásteinskantsteinn:  110 m
•  Malbikun, sögun:  25 m
•  Stéttar og steinlagnir:  670 m²
•  Rótarburðarlag og ræktunarjarðvegur:  65  m3
•  Tré:  6 stk
•  Skilti, ný:  1stk