Home Fréttir Í fréttum 12.04.2017 Æfingasvæði Víkings, endurnýjun og stækkun

12.04.2017 Æfingasvæði Víkings, endurnýjun og stækkun

160
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Æfingasvæði Víkings, endurnýjun og stækkun.  Útboð nr. 13962.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is –  frá kl. 12:00 þriðjudaginn 28. mars 2017.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:00 þann 12. apríl 2017.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða endurnýjun og stækkun knattspyrnuvallar við Traðarland. Verkið felst meðal annars í upprifi og förgun á núverandi yfirborðsefnum og girðingum, landmótun, lagningu drenlagna, lagningu vökvunarkerfis, útlögn rótarlags, grassáningu og eftirfylgni.

Helstu magntölur:
Upprif og förgun fastra yfirborðsefna:    5.000 m2
Upprif á girðingum:                                        270 m
Þökuskurður:                                              15.600 m2
Burðarlag:                                                     8.000 m3
Drenlagnir:                                                       410 m
Gröftur og tilfærsla efnis                               650 m3
Vökvunarkerfi:                                             1.360 m
Grassáning:                                               20.300 m2