Vinnuútboð
Hitaveita Húnaþings vestra óskar eftir tilboðum í endurnýjun hitaveitulagna á Hvammstanga. Um er að ræða endurnýjun og nýlögn á stofni hitaveitu í gegnum bæinn, um 1.200 m af foreinangruðum DN200 og DN150 stállögnum, ásamt tengingum við núverandi dreifikerfi og heimtaugar notenda, um 35 tengingar.
Verkinu er skipt á 2 ár og skal að fullu lokið 30. september 2027.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með mánudeginum 20. apríl nk. og skal senda fyrirspurnir á skuli@karaborg.is.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Húnaþings vestra á Hvammstangabraut 5, Hvammstanga, kl. 11:00 fimmtudaginn 30. apríl nk.












