Home Fréttir Í fréttum 12.04.2017 Úlfarsárdalur – hverfi 1, yfirborðsfrágangur 2017

12.04.2017 Úlfarsárdalur – hverfi 1, yfirborðsfrágangur 2017

254
0
Úlfarsárdalur

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Úlfarsárdalur – hverfi 1, yfirborðsfrágangur 2017.  Útboð nr. 13946.

Útboðsgögn verða eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá þriðjudeginum 28. mars 2017.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.  Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 14:00 þann 12. apríl 2017.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst m.a. í því að jafna undir gangstéttar, leggja snjóbræðslu, reisa ljósastólpa, steypa kantsteina, steypa gangstéttar, malbika, leggja hellur, þökuleggja og ganga frá gróðursvæðum.

Helstu magntölur eru:
•  Gröftur:   250 m3
•  Fylling :   250 m3
•  Snjóbræðslulagnir:  450 m2
•  Malbikun:   300 m2
•  Kantsteinn:   1.100 m
•  Steypt stétt:   1.700 m2
•  Hellulögn:   300 m2
•  Þökulögn:   1.000 m2
•  Gróðurbeð:   400 m2
•  Reisa ljósastólpa:  9 stk

Lokaskiladagur verksins er 15. október 2017.