Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 24.03.2026 Yfir­lagn­ir á Norður­svæði 2026, klæð­ing

24.03.2026 Yfir­lagn­ir á Norður­svæði 2026, klæð­ing

12
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á vegum á Norðursvæði  árið 2026. Verkefnið felst í að leggja einfalt lag af klæðingu með þjálbiki yfir eldra slitlag.

Helstu magntölur eru:

  • Klæðing, útlögn með þjálbiki 503.400 m2
  • Klæðing, kíling, útlögn 40.000 m2
  • Klæðing, flutningur steinefnis 243.700 m* km
  • Klæðing, flutningur bindi- og viðloðunarefnis 60.700 m* km
  • Formerkingar, línur 73.800 m

Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með 9. mars 2026.

Tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.