Home Fréttir Í fréttum Stærsti einka­fjár­festirinn hættir í stjórn Reita

Stærsti einka­fjár­festirinn hættir í stjórn Reita

28
0
Guðmundur Ingi Jónsson, tók sæti í stjórn Reita fyrir ári síðan. Hann fer fyrir félögum sem eiga 5,25% hlut í Reitum. Ljósmynd: Aðsend mynd

Guð­mundur Ingi Jóns­son segir ljóst að stærstu hlut­hafarnir treysti honum ekki fyrir því að leiða stjórnina.

Guðmundur Ingi Jónsson, stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Reita, hefur ákveðið að hætta við að gefa kost á sér til endurkjörs í stjórn fasteignafélagsins vegna óánægju með hvernig staðið var að ákvörðun um hver skuli taka við stjórnarformennsku.

Guðmundur, sem sóttist eftir formennsku, lýsir niðurstöðunni sem gríðarlegum vonbrigðum og segir að sér hafi ekki verið sýnt það traust sem hann vonaðist eftir.

Á þriðjudaginn síðasta, 3. mars, voru birtar tillögur tilnefningarnefndar Reita fyrir aðalfund félagsins, sem fer fram 25. mars nk.

Nefndin lagði til að Árni Sigurjónsson, forstöðumaður hjá JBT Marel og fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins, taki sæti í stjórn fasteignafélagsins í stað Þórarins Viðars Þórarinssonar sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Lagt var til að aðrir stjórnarmenn, þar á meðal Guðmundur, yrðu endurkjörnir.

Heimild: Vb.is