Niðurrif húsa í Grindavík hófst í gærmorgun en alls er áætlað að rífa á milli 35 og 40 altjónuð hús sem skemmst hafa í jarðhræringunum síðustu misseri.
Verktakar Jóns og Margeirs hófust handa við niðurrif þriggja húsa í bænum en fyrirtækið varð hlutskarpast í útboði um niðurrif fyrstu sex húsanna sem rifin verða.
Þeir standa auk þess í sprunguviðgerðum í bænum, meðal annars við íþróttahúsið þar sem var ansi stór sprunga, sem margir kannast við af fréttamyndum. Markmiðið er að fækka svæðum í bænum sem eru afgirt og lokuð.

Vísir/Lýður Valberg
Erfitt að sjá á eftir heimilum
Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, segir erfitt að sjá á eftir heimilum fólks í niðurrif. Húsin geymi margar minningar en Grindvíkingar hafi ákveðið að líta á niðurrifið sem hluta af endurreisn bæjarins.
Grindavíkurbær haldi utan um útboð vegna niðurrifsins og bæjarbúar sæki um niðurrif til bæjarins. Sú leið hafi verið talin skilvirkust.
„Þetta er hluti af stórri og markvissri aðgerðaáætlun, til þess að gera þessi svæði örugg.“

Vísir/Lýður Valberg
Mikilvæg skref
Starf skólastjóra í grunnskóla bæjarins hefur verið auglýst, kosið verður til bæjarstjórnar bæjarins í vor og matvöruverslun verður opnuð í bænum á næstu dögum. Ásrún segir öll slík lítil skref skipta máli við endurreisn Grindavíkur.
„Við þurfum að auka þjónustu í bænum og mér finnst við hafa sýnt mikinn baráttuhug, Grindvíkingar. Þetta eru gríðarlega mikilvæg skref.“

Vísir/Lýður Valberg
Heimild: Visir.is












