Home Fréttir Í fréttum 21.04.2026 Landsvirkjun. 2026-09 BUF11 Þjónustuhús á Hellu

21.04.2026 Landsvirkjun. 2026-09 BUF11 Þjónustuhús á Hellu

34
0
Mynd: Landsvirkjun

Landsvirkjun, hér á eftir nefnt verkkaupi óskar eftir tilboðum í verkið: 2026-09 BUF11 Þjónustuhús á Hellu.

Um er að ræða blandaða skrifstofu- og verkstæðisbyggingu á um 0,9 ha lóð við Faxaflatir á Hellu.

Í skrifstofuhlutanum eru teymisrými A (40,6 m²) og teymisrými B (48 m²). Í beinum tengslum við teymisrýmin eru 32 m² fundarherbergi og 52,7 m² kaffitorg. Felliveggur milli fundar-herbergis og kaffitorgs gerir kleift að sameina rýmin eftir þörfum.

Starfsmannainngangur, þrjár snyrtingar, búningsaðstaða, inntaksrými og ræsting liggja við milligang, alls um 61 m². Fyrir ofan þann hluta er 45 m² loftræsirými.

Milligangurinn tengist verkstæði og lager sem, ásamt spilliefnageymslu, er alls 88,9 m²

Heildarstærð aðalbyggingarinnar er 414,8 m².  Aðkoma og öll rými eru hönnuð samkvæmt meginreglum algildrar hönnunar.

Á lóðinni er einnig lágreist 46 m² skýli sem skiptist í  25 m² hjólaskýli og 21 m² kalda geymslu.

Mannvirki verða Svansvottuð og er þess krafist að efnisval og framkvæmd fylgi þeim kröfum og verklýsingum sem Svansvottun tengjast.

Aðalbyggingin er staðsteypt og klædd að utan með litaðri álklæðningu á undirkerfi úr áli. Þakið er létt timburþak með borðaklæðningu, loftunardúk og formbeygðri alusink klæðningu á lektum.

Enginn kjallari er undir mannvirkjum og verða þau grunduð á fyllingu.

Efnisskipta skal undir öllum helstu aksturleiðum og plönum á lóðinni og skal öllum uppgrefti komið fyrir á lóðinni og  gróflega móta undir landmótun og lóðafrágang, sem er ekki hluti þessa samnings. Aðalbyggingu skal skilað fullfrágenginni að innan sem utan, þar með talið lagnir, loftræsing og rafbúnaður.

Á lóð skal efnisskipta undir plönum og akstursleiðum, og uppgrafið efni grófformað.

Helstu magntölur eru:

  • Laus gröftur: 4.000 m³
  • Fyllingar: 4.100 m³
  • Steypumót: 1.300 m²
  • Steinsteypa: 220 m³
  • Álklæðning: 345 m²
  • Áfellur: 430 m

Opinber leyfi fyrir gerð ofangreindra mannvirkja liggja fyrir.

Sjá frekar.