F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
16249 Málun 2026 í fasteignum Reykjavíkurborgar, í hverfum 6, 7 og 8, 9, 10.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verk þetta felst í endurmálun og nýmálun í ýmsum mannvirkjum Reykjavíkurborgar.
Útboð þetta er skipt upp í hluta þar sem hver fasteign er sér hluti. Bjóðendum er heimilt að bjóða í stakar fasateignir, eina eða fleiri. Útboð þetta á við hverfi 6, 7 (Breiðholt og Árbær) og 8, 9,10 (Grafarvogur, Kjalarnes og Grafarholt-Úlfarsárdalur).
Áætluð lok framkvæmdatíma: 31. desember 2026.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is, frá kl. 15.00 þann 15. janúar 2026.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 3. febrúar 2026.












