Home Fréttir Í fréttum Virkja vatnið á Ísafirði og fjórðungur húsa gæti notið jarðhita um áramót

Virkja vatnið á Ísafirði og fjórðungur húsa gæti notið jarðhita um áramót

35
0
Heitt vatn rennur úr borholu Orkubús Vestfjarða í Tungudal í Ísafirði. Vatnið er um 56 gráðu heitt og hægt er að dæla úr henni um 35 lítrum á sekúndu án þess að ganga á auðlindina. Aðsend mynd – Orkubú Vestfjarða

Heita vatnið sem fannst í Skutulsfirði fyrir ári er nógu orkuríkt til að knýja varmadælur fyrir öll hús á Ísafirði. Orkubú Vestfjarða undirbýr útboð og stefnir á að virkja vatnið fyrir fyrstu notendur um áramót.

Orkubú Vestfjarða undirbýr að virkja heita vatnið sem fannst á Ísafirði í tveimur áföngum og jafnvel gætu fyrstu íbúarnir notið jarðhitans um næstu áramót. Orkubústjórinn segir óvíst að kyndikostnaður lækki en íbúar séu betur varðir fyrir hækkun raforkuverðs.

Heitt vatn fannst í Tungudal á Ísafirði í maí í fyrra, steinsnar frá byggðinni í Skutulsfirði og í tæplega þriggja kílómetra fjarlægð frá miðbænum á Ísafirði. Orkubú Vestfjarða notaði veturinn í að skoða nýtingu og Elías Jónatansson orkubússtjóri segir að með varmadælum dugi vatnið til að kynda öll hús á Ísafirði.

„Þannig að við munum huga að útboði á næstu vikum eða mánuðum varðandi nýtinguna og í fyrsta áfanga ætlum við að sinna byggðinni í firðinum; í Skutulsfirði á Ísafirði. Síðan er stefnan tekin á að leggja allan Ísafjörð undir í næsta áfanga,“ segir Elías.

Næsti áfangi kallar á þriggja kílómetra lögn

Bjartsýnisspá geri ráð fyrir að íbúar inni í firði geti notið jarðhitans frá áramótum og þar með yrði fjórðungur notenda kominn á nýja kerfið. Til að koma heita vatninu út á eyri á Ísafirði þarf svo að leggja 3 kílómetra lögn, annaðhvort í núverandi kyndistöð eða í nýja stöð sem þyrfti þá að byggja utan um varmadæluna.

Ekki þarf að leggja lagnir í götur því á Ísafirði eru kyndistöðvar sem hita vatn og dæla um byggðina. Í þeim hefur stundum þurft að brenna olíu til að kynda þegar skerða þarf raforku. Reyndar fékkst hagstæður samningur um forgangsorku við Landsvirkjun en aðeins til fjögurra ára. Þegar hann rennur út þarf hitaveituvatnið að verða komið í gagnið. Annars er viðbúið að hækka þyrfti reikninga umtalsvert.

„Drifkrafturinn í þessu er sá að við sáum ekki fram á að geta rekið rafkynta hitaveitu nema hækka verðin mikið,“ segir Elías Jónatansson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða.

Heimild: Ruv.is