Lóðirnar tvær eru innan deiliskipulags miðbæjar Akureyrar og er á báðum lóðum gert ráð fyrir verslun og þjónustu á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum. Heimilt er að vera með atvinnustarfsemi á annarri hæð. Gert er ráð fyrir sameiginlegum bílakjallara fyrir Hofsbót 1 og 3 með inn- og útakstri frá Strandgötu og eru lóðirnar tvær því boðnar út sem ein heild.
Lóðastærð og byggingarmagn:
Hofsbót 1: Lóðastærð 2.013,5 m² og heildarbyggingarmagn 6.130,6 m²
Hofsbót 3: Lóðastærð 1.593,3 m² og heildarbyggingarmagn 4.402,1 m²
Samtals eru lóðirnar 3.606,8 m² að stærð með heildarbyggingarmagn upp á 10.532,7 m².
Tilboðum í lóðirnar skal skila rafrænt í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 fimmtudaginn 26. júní 2025. Gæta skal þess að tilboð lögaðila séu staðfest af þeim sem hefur/hafa heimild til að skuldbinda félagið.
Hér má nálgast útboðsgögn fyrir lóðirnar og framhaldinu skila inn tilboði.
Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði.
Heimild: Akureyrarbær