Rarik ohf., kt. 520269-2669, óskar eftir tilboðum í útboð nr. 25036 SPENNAHÚS FLÚÐUM.
Í verkinu felst bygging á nýju spennahúsi fyrir verkkaupa við Flúðir í Hrunamannahreppi, á lóð fyrirtækisins í landi Hrafnkelsstaða.
Um er að ræða óeinangraða byggingu fyrir alls þrjá spenna, með olíuþróm og lagnaleiðum í kjallara. Stærð hússins er 233 m² brúttó, mesta hæð 11,1 m frá kjallaragólfi.
Verk skal hefjast í júlí 2025 með fyrirvara um að öll leyfi liggi fyrir.
Tilboðum skal skilað inn með rafrænum hætti á útboðsvef RARIK.
Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.
Útboðsgögn og allar frekari upplýsingar má finna á útboðsvef RARIK.
Útboðsgögn afhent: | 23.05.2025 kl. 12:14 |
Skilafrestur | 23.06.2025 kl. 13:00 |
Opnun tilboða: | 23.06.2025 kl. 13:00 |