Kópavogsbær, óskar eftir tilboði í verkið:bVatnsendavegur – Gatnagerð, stígar og undirgöng
Verkið felur í sér fullnaðarfrágang Vatnsendavegar á milli Vatnsendahvarfs og Arnarnesvegar.
Gerð steyptra undirganga undir Vatnsendaveg austan Arnarnesvegar ásamt aðliggjandi stígum.
Endurgerð götuþversniðs Vatnsendahvarfs milli Breiðholtsbrautar og Ögurhvarfs samhliða því að umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrauta og Vatnsendahvarfs verða tekin niður og vinstri beygjur á Breiðholtsbraut verða bannaðar.
Núverandi götulýsing á Vatnsendavegi tekin niður og ný sett upp. Sett upp lýsing við göngu- og hjólastíga.
Helstu magntölur í verkinu eru:
Gröftur | 26.000 m3 |
Losun klappar | 7.100 m3 |
Fráveitulagnir | 300 m |
Ný niðurföll | 35 stk. |
Lokun/fjarlæging niðurfalla | 40 stk. |
Fylling | 13.000 m3 |
Malbik | 18.000 m2 |
Kantsteinar | 1.800 m |
Steypumót | 850 m2 |
Steypa | 210 m3 |
Slakbent járnalögn | 27.000 kg |
Nýir ljósastólpar | 72 stk. |
Rafstrengur (lýsing) | 3.300 m |
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu TendSign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt inn í TendSign
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.