20.7.2016
Fyrri opnunarfundur 19. júlí 2016. For- og verkhönnun fyrir breikkun Hringvegar (1), frá Kambarótum að vegamótum Hringvegar og Biskupstungnabrautar, um 12 km. Á vegkaflanum skal hanna átta steyptar brýr og undirgöng, fimm bárustálsundirgöng, þar af ein ætluð til aksturs. Að lokum skal hanna tvenn tvöföld hringtorg, tvenn hliðfærð T-vegamót og hliðarvegi, göngu- og hjólreiðastíga, samtals um 9 km.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Á fundinin var lesið upp hverjir skiliðu inn tilboðum en á seinni opnunarfundi þriðjudaginn 26. júlí 2016 klukkan 14:15 verða lesin upp nöfn hæfra bjóðenda úr hæfnisvali og tilboðsupphæð af tilboðseyðublöðum.
Bjóðendur:
Hnit, verkfræðistofa, Reykjavík
Verkís hf., Reykjavík
VSÓ ráðgjöf, Reykjavík
Efla hf., Reykjavík
Mannvit, verkfræðistofa, Reykjavík