Leiguverð á þriggja herbergja íbúð í Reykjavík nálgast fjögur hundruð þúsund krónur. Þetta segir formaður Leigjendasamtakanna sem telur að allt að eittþúsund íbúðir muni bætast á leigumarkað verði dregið úr skammtímaleigu.
Fimm fjölskyldur eru um hverja leiguíbúð, segir formaður Leigjendasamtakanna sem fagnar fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um bráðaaðgerðir á leigumarkaði.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í fréttum RÚV um helgina að gripið yrði til aðgerða eins fljótt og auðið væri. Dregið yrði úr skammtímaleigu með því að breyta húsaleigulögum og hugað yrði að uppbyggingu óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis.
Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna segir að lengi hafi verið kallað eftir aðgerðum stjórnvalda til að bæta stöðu leigjenda. „Það eru komin átta ár síðan beðið var um að það yrði ráðist í aðgerðir,“ segir Guðmundur.
Að hans mati gætu nokkur hundruð íbúðir komið inn á leigumarkað strax í kjölfar þessarar breytingar. „Mér telst til sjálfum að það séu 900-1000 íbúðir, bara í Reykjavík, sem ættu alls ekki að vera á skammtímaleigumarkaði. En við eigum líka eftir að sjá hvenær þessar reglur koma til framkvæmda og hver umþóttunartími eigenda þeirra íbúða sem eru á skammtímaleigumarkaði verður.“
Segir að Airbnb hafi verið hugsað á annan hátt
Þarna er fólk að ráðstafa þeim íbúðum sem það hefur sannarlega keypt sér og á – er ekki verið að setja óþarfa hömlur á fólk sem á fleiri en eina íbúð? „Nei alls ekki. Airbnb-deilihagkerfið var hugsað þannig að fólk átti að geta leigt út, tímabundið, sitt eigið heimili. En þetta hefur breyst í mjög mikið brask og fjárfestingamiðað kerfi sem þarf að taka á. Það er ekki verið að skerða eignarréttinn með því að setja ákveðnar hömlur á hvernig þú getir nýtt hann.“
En er ekki verið að setja ábyrgðina og þetta verkefni yfir á fólk sem á fleiri en eina íbúð í staðinn fyrir að sjá til þess að hið opinbera byggi óhagnaðardrifið leiguhúsnæði?
„Auðvitað þarf að byggja. En það mun taka tíma, 3-5 ár ef það verður byrjað á morgun. Þetta er langt frá því sem þarf að gera, en við fögnum viðleitni stjórnvalda.“
Guðmundur segir að á meðan ekkert hafi verið gert til að bæta stöðu leigjenda hafi biðlistar lengst og leiguverð hækkað. „Leiga á hefðbundinni fjölskylduíbúð í Reykjavík er að nálgast 400.000 krónur. Þá erum við að tala um 3ja herbergja 90 fermetra íbúð. Við vitum að það eru 4.000 manns að bíða eftir leiguhúsnæði hjá Bjargi og það eru sirka fimm fjölskyldur um hverja auglýsta leiguíbúð.“
Heimild: Ruv.is