Home Fréttir Í fréttum Vatnsleki í Borgarleikhúsinu

Vatnsleki í Borgarleikhúsinu

37
0
Borgarleikhúsið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Slökkvilið höfuðborg­ar­svæðis­ins var kallað út í Borg­ar­leik­húsið snemma í morg­un vegna vatnsleka.

<>

Tveir dælu­bíl­ar slökkviliðsins fóru á staðinn og tók um tvo og hálfa klukku­stund að hreinsa upp vatnið að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborg­ar­svæðis­ins.

Hlyn­ur Páll Páls­son, sam­skipta­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins, seg­ir í sam­tali við mbl.is að svo virðist vera að pakkn­ing á krana í vaski á 2. hæð hafi gefið sig í nótt eða snemma í morg­un og hafi kalt vatn lekið á þrem­ur hæðum bygg­ing­ar­inn­ar.

„Það er búið að þurrka allt vatn og við fyrstu sýn virðist ekki hafa orðið neitt al­var­legt tjón. Það lak vatn inn í bún­ings­her­bergi leik­ara, inn í al­menn­ings­rými og niður í kjall­ara til ís­lenska dans­flokks­ins. Það voru all­ir ræst­ir út með hand­klæði, mott­ur og vatns­sug­ur og slökkviliðið stóð sig frá­bær­lega,“ seg­ir Hlyn­ur.

Heimild: Mbl.is