Home Fréttir Í fréttum Í­búðum í byggingu fór fækkandi á milli ára

Í­búðum í byggingu fór fækkandi á milli ára

22
0
Nærri 2.300 fullbúnar íbúðir komu á markað á höfuðborgarsvæðinu í fyrra Vísir/Vilhelm

Íbúðum í byggingu á landinu hafa farið fækkandi á milli ára þrátt fyrir vaxandi íbúðaþörf. Þó að fullbúnum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hafi verið fleiri á síðasta ári en undanfarin ár þá uppfylla þær þó ekki þörfinni. Þá var sölutími íbúða með stysta móti á síðasta ári.

<>

Þetta er meðal þess sem fram kom á opnum fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stöðuna á íbúðamarkaði sem haldinn var í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samtök iðnaðarins.

„Á fundinum kom fram að öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu endurskoðuðu og staðfestu húsnæðisáætlun fyrir árið 2024 sem markar stefnu fyrir uppbyggingu íbúða og framtíðarsýn sveitarfélaganna næstu 10 ár.

Nærri 2.300 fullbúnar íbúðir komu á markað á höfuðborgarsvæðinu í fyrra sem eru fleiri íbúðir en komu á markaðinn síðastliðin þrjú ár þar á undan. Fullbúnum íbúðum fjölgaði hlutfallslega mest í Hafnarfjarðarkaupstað, eða um 4,8 prósent, þar sem 524 íbúðir urðu fullbúnar á síðasta ári.

Um 2.400 íbúðir eru nú til sölu á höfuðborgarsvæðinu og sölutími enn stuttur í sögulegu samhengi en það tekur að meðaltali um 45 daga að selja íbúð sem er frá því að fyrsta fasteignaauglýsing er birt og þar til að kaupsamningur er undirritaður.

Samkvæmt talningu íbúða í byggingu sem framkvæmd var í september sl. voru um 5.000 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu sem er um 17% færri en voru í byggingu árið á undan. Til þess að mæta áætlaðri íbúðaþörf á höfuðborgarsvæðinu þurfa að meðaltali 2.900 íbúðir að verða fullbúnar á ári og þyrftu íbúðir í byggingu að vera nær 6.000 talsins ef miðað er við tveggja ára byggingartíma. Til samanburðar hafa á síðastliðnum fimm árum að meðaltali 2.150 íbúðir orðið fullbúnar á ári,“ segir í tilkynningu á vef HMS.

Heimild: Visir.is